14.04.1950
Neðri deild: 83. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 560 í B-deild Alþingistíðinda. (891)

53. mál, eignakönnun

Frsm. (Ásgeir Ásgeirsson):

Herra forseti. Ég var ekki viðstaddur 2. umr. málsins, en er form. þeirrar n., sem fjallaði um frv. þetta, þ.e.a.s. fjhn. Fjhn. telur, að það sé svo rækilega frá þessu máli gengið, að hún hefur ekkert við gr. frv. að athuga, og vildi ég aðeins, að það kæmi fram í þingtíðindunum.