01.03.1951
Efri deild: 78. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 637 í B-deild Alþingistíðinda. (1519)

2. mál, hlutatryggingasjóður bátaútvegsins

Jóhann Jósefsson:

Ég hef hlustað á það, sem hæstv. ráðh. sagði í þessu efni, og þykir mér vænt um að heyra, að hann er í sjálfu sér sömu skoðunar og ég og sá annar hv. þm., sem gerir þetta að skilyrði, þar sem hann segist telja æskilegt, að þetta yrði hægt að gera, sem sé að taka upp tilsvarandi fjárhæð á næsta fjárlfrv. til þess að bæta síldveiðideildinni þetta. Mér þykir leitt, að hæstv. ráðh. treystir sér ekki til að gefa ákveðin fyrirheit í þessu efni, en þætti nokkurs um vert, ef hæstv. ráðh. vildi segja sem svo, að hann mundi mæla með því innan ríkisstj., að þetta yrði gert.