16.02.1951
Neðri deild: 70. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 804 í B-deild Alþingistíðinda. (1780)

176. mál, lántaka handa ríkissjóði

Fjmrh. (Eysteinn Jónason):

Herra forseti. Ég vil taka það fram út af þessari síðustu ræðu, að með þessari nýju lántöku er ekki verið að ryðja burtu nokkrum fyrirhuguðum framkvæmdum. Hér er ekki heldur verið að tala um það að auka framkvæmdir í landbúnaðinum, heldur einungis það, að ekki þurfi að koma til samdráttar í fjárveitingum til hans.