15.01.1951
Efri deild: 49. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1121 í B-deild Alþingistíðinda. (2299)

82. mál, sala jarðeigna í opinberri eigu

Frsm. (Vilhjálmur Hjálmarsson):

Herra forseti. Landbn. hefur samkv. beiðni ráðh. tekið til ath. till. um að bæta inn í frv. einum tölul., um að heimila ríkisstj. að selja þjóðjörðina Birgisvík í Árneshreppi í Strandasýslu. N. leitaði sér upplýsinga, er staðfestu það, sem ráðh. sagði við 2. umr., og hefur tekið þetta upp sem sína till. Rétt er að láta þess getið, að einungis 4 nm. eiga hér hlut að, þar sem hv. 7. landsk. hefur ekki getað mætt á fundum nefndarinnar vegna veikinda.