06.02.1951
Efri deild: 65. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 92 í C-deild Alþingistíðinda. (3079)

70. mál, lyfsölulög

Frsm. (Rannveig Þorsteinsdóttir):

Herra forseti. Heilbr.- og félmn. hafði óskað þess, að forsrh. yrði við hér í d., þegar 5. og 6. mál á dagskránni, sem bæði fjalla um lyfjasölu, væru tekin til umræðu. Hann mun nú ekki geta verið staddur hér á fundinum, og mælist ég því til þess við hæstv. forseta, að hann taki þessi tvö mál af dagskrá í dag.