08.11.1950
Sameinað þing: 12. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 140 í D-deild Alþingistíðinda. (3982)

73. mál, loftskeytastengurnar á Melunum í Reykjavík

Viðskmrh. (Björn Ólafsson) :

Herra forseti. Mér þykir leitt, að það lítur út fyrir, að ég hafi gert hv. n. rangt til viðkomandi afgreiðslu álitsins. En ég hafði ekki hugmynd um, að þetta álit lá í ráðuneytinu. Það hefur komið þangað áður en ég tók við störfum þar, og hefur það þá verið í skjalasafni ráðuneytisins og ekki von, að það kæmi í mínar hendur.