08.11.1950
Sameinað þing: 12. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 335 í D-deild Alþingistíðinda. (4327)

900. mál, Bernarsambandið

Gísli Guðmundsson:

Herra forseti. Mér skilst af þeim umr., sem hér hafa farið fram, að höfundar eigi inni hjá STEF um 72 þús. kr. Jafnframt skilst mér, að bæði sé um að ræða innlenda og erlenda höfunda. Nú vil ég leyfa mér að beina þeirri spurningu til hæstv. ráðh., hve mikið af þessu fé sé eign innlendra og hve mikið eign erlendra höfunda.