06.03.1951
Neðri deild: 85. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1563 í B-deild Alþingistíðinda. (471)

Starfslok deilda

mælti forseti (SB) :

Þetta verður væntanlega síðasti fundur deildarinnar á þessu þingi, og vil ég leita leyfis til handa mér og skrifara hjá hv. þdm. til þess að ganga frá gerðabók þriggja síðustu funda síðar, og skoðast það samþ., ef því verður ekki andmælt. — Ég vil að lokum þakka hv. þdm. fyrir ánægjulegt og gott samstarf á liðnum vetri á þessu þingi, og utanbæjarþingmönnum óska ég góðrar heimferðar og góðrar heimkomu og vil óska þess, að allir hv. þdm. hittist hér á næsta þingi heilir á húfi.