08.11.1951
Sameinað þing: 13. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 318 í D-deild Alþingistíðinda. (3559)

88. mál, upptökuheimili handa vangæfum börnum og unglingum

Fyrirspyrjandi (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. menntmrh. fyrir ágæt svör, og mér þykir vænt um þann mikla skilning, sem hann hefur á þessu máli. Ég er enn fremur sammála honum um, að í upphafi þarf vel til þessa að vanda eins og alls, sem lengi á að standa.