17.01.1952
Neðri deild: 60. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1405 í B-deild Alþingistíðinda. (3659)

Afgreiðsla mála úr nefndum o. fl.

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. Það var tímanlega á þessu þingi, að ég bar fram frv. um breyt. á l. um samþykktir um sýsluvegasjóði. Frv. var vísað til samgmn. Nú vildi ég vita, hvað þessu frv. liði.

Þá flutti ég annað frv., sem vísað var til sömu n., um ferðaskrifstofu ríkisins, en ekki hefur heldur komið neitt frá n. um það mál.