20.12.1951
Neðri deild: 52. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1432 í B-deild Alþingistíðinda. (3691)

Þinghlé

forseti (SB):

Þar sem þetta verður væntanlega síðasti fundur hv. þd., áður en þingfundum verður frestað fyrir jól, vil ég leyfa mér að óska hv. þdm. gleðilegra jóla og nýárs, utanbæjarþm. góðrar heimferðar og heimkomu og vænti svo, að hv. þdm. hittist hér heilir á húfi á nýja árinu.