24.01.1952
Neðri deild: 70. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1434 í B-deild Alþingistíðinda. (3701)

Starfslok deilda

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Ég vil fyrir hönd allra þdm. þakka hæstv. forseta fyrir góðar óskir í okkar garð, og ég veit, að ég mæli fyrir hönd þeirra allra, er ég þakka honum fyrir gott samstarf og röggsama og sanngjarna fundarstjórn, og ég óska þess, að við hittum hann heilan, er þing kemur saman á ný. — Ég vil leyfa mér að biðja hv. þdm. að taka undir þessar árnaðaróskir með því að rísa úr sætum. — [Deildarmenn risu úr sætum.]