21.01.1953
Neðri deild: 54. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 952 í B-deild Alþingistíðinda. (1007)

42. mál, verðlag

Forseti (SB):

Ég vænti, að hv. þingmenn sjái það, að forseli á engin tök á því að leiða frsm. eða hæstv. ráðh. fram fyrir þá. Hins vegar er það að sjálfsögðu hinn mesti óvandi, þegar frsm. mæta ekki til þess að standa fyrir máli þeirra n., sem hafa falið þeim framsögu. Hins vegar vænti ég, að hv. 3. landsk. gefist tækifæri við 3. umr. málsins til þess að bera á ný fram fyrirspurnir sínar. En ég sé ekki ástæðu til þess að verða við þeirri ósk að fresta umræðum af þessum ástæðum.