11.11.1952
Neðri deild: 24. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 91 í B-deild Alþingistíðinda. (144)

8. mál, Sogs- og Laxárvirkjun

Frsm. (Skúli Guðmundsson):

Herra forseti.

Frv. þessu var vísað til fjhn. til athugunar, og eins og fram kemur í nál. á þskj. 201, hefur n. athugað málið, og eru allir nefndarmenn sammála um að mæla með því, að frv. verði samþ. eins og það liggur fyrir.