12.12.1952
Neðri deild: 39. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 3 í C-deild Alþingistíðinda. (2874)

87. mál, prófesorsembætti í læknadeild háskólans

Einar Olgeirsson:

Þar sem flestöll þau frv., sem hæstv. ríkisstj. hefur flutt fyrir Alþ., eru til bölvunar, þá finnst mér rétt, að þau fáu, sem til einhvers góðs horfa, séu studd af stjórnarandstöðunni, sérstaklega þegar það kemur í ljós, að enginn ráðherra sýnir sig í d. til þess að greiða atkv. með henni. Þess vegna segi ég já.