11.11.1952
Efri deild: 24. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 538 í C-deild Alþingistíðinda. (3470)

69. mál, kaup á togurum og togveiðibát

Forseti (BSt):

Ég mun að vísu verða við ósk hv. þm. Barð. um að ljúka ekki þessari umr. nú, en mun þó veita þeim hv. þdm. orðið, sem höfðu kvatt sér hljóðs áður en hann bar þessa ósk fram. Þó mun nú ekki vera kostur á því, að einn þeirra geti tekið til máls, því að það er forseti deildarinnar og hvorugur varaforsetinn sjáanlegur.