06.02.1953
Neðri deild: 69. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 591 í C-deild Alþingistíðinda. (3534)

69. mál, kaup á togurum og togveiðibát

Forseti (SB):

Ég vil vekja athygli hv. þm. á því, að ef frekari umr. verða um þetta mál, þá mun ekki vinnast tími til þess að láta atkvgr. fara fram um það, þar sem aðeins eru fimm mínútur eftir af fundartímanum, þar til fundur á að hefjast í sameinuðu Alþingi. — Mér hefur borizt brtt. frá hv. þm. V-Ísf. Hún er skrifleg og of seint fram komin og þarf tvöfaldra afbrigða við, sem ég leita hér með.