02.12.1952
Neðri deild: 33. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 306 í B-deild Alþingistíðinda. (517)

13. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Lúðvík Jósefsson:

Herra forseti. Það er í sambandi við það, að ég hef nýlega lagt inn brtt. hér við frv., en sú brtt. er nú í prentun, og eigi hún að koma fyrir þessa umr. til atkvgr., þá þyrfti að fresta þessari umr., sennilega til morguns, eða eitthvað fram eftir deginum. Ég mun ekki gera hér grein fyrir þessari brtt. fyrr en henni hefur verið útbýtt, nema forseti óski þess sérstaklega, en hún er nú í prentun, en ekki komin fram.