09.04.1954
Efri deild: 82. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1222 í B-deild Alþingistíðinda. (1179)

197. mál, gin- og klaufaveiki

Haraldur Guðmundsson:

Herra forseti. Hv. 1. þm. N-M. óskaði þess, að leyfin til að veiða hreindýr yrðu ekki skorin við nögl. Ég vil þvert á móti beina því til hæstv. ríkisstj. að fara mjög varlega í það að veita veiðileyfi og tel, að þetta ætti að gilda fyrst og fremst um tarfana, eins og gert hefur verið til þessa.