17.12.1953
Efri deild: 39. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1294 í B-deild Alþingistíðinda. (1331)

101. mál, þingfararkaup alþingismanna

Brynjólfur Bjarnason:

Ég hefði kosið, að það yrðu gerðar breytingar á þessu frv. Ég tel, að það hafi verið gerðar slíkar gerbreytingar á frv. í hv. Nd., að það sé mjög erfitt fyrir þessa d. að afgreiða málið sem lög frá Alþ., án þess að það fái nánari athugun, og greiði því ekki atkv.