16.03.1954
Efri deild: 62. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1371 í B-deild Alþingistíðinda. (1535)

119. mál, Búnaðarbanki Íslands

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Ég var svo kvefaður í gær, að ég gat ekki komið hingað. Ég sé, að hér eru komnar upplýsingar, en mér hefur vitanlega ekki gefizt færi á að athuga þær og vildi nú mælast til þess, að málið yrði tekið út af dagskrá í dag, til þess að það mætti skoða þessar upplýsingar og hafa það þá strax á fimmtudaginn aftur.