26.11.1953
Efri deild: 24. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 106 í B-deild Alþingistíðinda. (175)

4. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Jóhann Jósefsson:

Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir þessar undirtektir og veit ekki betur en ég fari með rétt mál um þennan söluskatt, sem um ræðir. Og þar sem hann hefur tjáð sig fúsan til viðræðna um að leysa málið og hefur það í hendi sér, að því er mér skildist, án nýrra lagaákvæða, þá hef ég engu hér við að bæta. Mér datt þetta einmitt í hug, ef slíkt væri ekki fyrir hendi, að það væri kannske mögulegt að nota þessa grein, sem ég minntist á. En að fengnum þeim upplýsingum, sem hæstv. ráðh. hefur látið í té, þá sé ég ekki ástæðu til að orðlengja frekar um þetta að þessu sinni. Við munum svo taka upp þær viðræður, sem hann hefur m.a. til stofnað, og vonum þá að geta fengið þetta lagfært við þær.