05.03.1954
Neðri deild: 58. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1701 í B-deild Alþingistíðinda. (3569)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Mér var skýrt frá því á skotspónum, að það hefði verið fsp. hér, að því er mér skildist, eða ádeila — ég vissi ekki hvort heldur. (Gripið fram í.) Já, fyrirspurn út af handritamálinu. Nú veit ég ekki glögglega, hver hún var, en ef það er ekki of mikið ónæði, þá vildi ég eiga þess kost að heyra hana, til þess að vita, hvort hún er þess eðlis, að henni sé hægt að svara nú.