29.10.1953
Efri deild: 11. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1715 í B-deild Alþingistíðinda. (3600)

Afgreiðsla mála úr nefndum

Sigurður Ó. Ólafsson:

Herra forseti. Vegna fyrirspurnar hæstv. forseta á síðasta fundi um gang nokkurra mála í nefndum í þessari hv. deild, vil ég taka fram vegna samgmn.: Sú hefur verið venja, að samvn. samgöngumála, þ. e., sameinaðar samgmn. beggja deilda, hefur fjallað um frv., sem fram hafa komið um breyt. á vegalögum og brúalögum. Hefur sú tilhögun reynzt nokkuð vel. En slíkur fundur hefur ekki enn verið haldinn, en mun verða bráðlega. — Ég vildi aðeins geta þessa utan dagskrár vegna fyrirspurnar hæstv. forseta.