29.10.1953
Efri deild: 11. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1715 í B-deild Alþingistíðinda. (3602)

Afgreiðsla mála úr nefndum

Bernharð Stefánsson:

Herra forseti. Frv. það um breyt. á vegal., sem vísað var til hv. samgmn., var frá mér og var svo sérstaks eðlis, að mér finnst nú, að það gæti verið utan við þá venjulegu togstreitu um að fá tekna smávegakaflavegalög. Ég vildi því mjög mælast til þess, að hv. nefnd afgreiddi þetta mál, hvað sem líður samningum samgmn. í deildunum um þessa venjulegu togstreitu um smávegakafla.