05.10.1953
Sameinað þing: 2. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1722 í B-deild Alþingistíðinda. (3622)

Rannsókn kjörbréfa - varamenn taka þingsæti

Frsm. (Gísli Guðmundsson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur haldið fund og tekið til athugunar kjörbréf Kjartans Jóhannssonar, hv. þm. Ísaf. Nefndin hefur ekki neinar athugasemdir að gera við kjörbréfið og leggur til, að það verði samþykkt.