21.03.1955
Efri deild: 60. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 921 í B-deild Alþingistíðinda. (1111)

150. mál, kostnaður við skóla

Ingólfur Flygenring:

Herra forseti. Ég ætlaði aðeins að svara þessari fsp. frá hv. 2. þm. S-M. (VH), að við höfum ekki átt viðtal við kennara eða forstöðukonur (Gripið fram í: Námsstjóra.) né námsstjóra húsmæðraskólanna um þetta atriði, en það er sjálfsagt og velkomið að leita sér upplýsinga um það atriði.