12.11.1954
Neðri deild: 17. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 80 í B-deild Alþingistíðinda. (201)

12. mál, yfirstjórn mála á varnarsvæðunum o. fl.

Jóhann Hafstein:

Herra forseti. Með því að enn er í endurskoðun sá þáttur skattalaganna, sem veit að bæjar- og sveitarfélögum, og þess að vænta, að við þá endurskoðun verði leiðréttur hlutur bæjar- og sveitarfélaganna, sérstaklega varðandi tekjuöflunarmöguleika þeirra, þá segi ég nei við þessari till.