22.11.1954
Sameinað þing: 19. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 59 í D-deild Alþingistíðinda. (2422)

105. mál, atkvæðagreiðsla að hálfu Íslands

Bergur Sigurbjörnsson:

Herra forseti. Þar sem þegar er búið að fella allar þær brtt., sem gátu haft einhverja verulega breytingu í för með sér á till. ríkisstjórnarinnar, en þessi till., sem hér liggur fyrir, gengur þó í ofur lítið aðra átt, þó að mér sýnist vera mótsögn í sjálfri till., þá segi ég samt sem áður já við tillögunni.