14.03.1956
Sameinað þing: 46. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 68 í D-deild Alþingistíðinda. (2233)

21. mál, heyverkunaraðferðir

Jörundur Brynjólfsson:

Ég vil láta í ljós þakklæti mitt til hv. fjvn. fyrir till. hennar í þessu máli. Við flm. getum fullkomlega fallizt á brtt. n. Höfuðástæða okkar flm. til að hreyfa þessu máli var, að því yrði sinnt og frekari gaumur gefinn heldur en enn er hér hjá okkur, og þeim tilgangi okkar fullnægir brtt. hv. fjvn.