13.02.1956
Neðri deild: 67. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 728 í B-deild Alþingistíðinda. (501)

151. mál, samkomudagur reglulegs Alþingis 1956

Forsrh. (Ólafur Thors):

Herra forseti. Með þessu frv. er lagt til, að reglulegt Alþingi 1956 komi saman 10. dag októbermánaðar, hafi forseti Íslands ekki tiltekið annan samkomudag fyrr á árinu.

Ég þarf ekki að fylgja þessu úr hlaði með neinum skýringum umfram það, sem er í grg. Raunar er án greinargerðar einnig öllum hv. þm. kunnugt um, hvernig á þessu stendur, og fyrir því svo mörg fordæmi, að málalengingar eiga þar ekki að þurfa.