25.03.1957
Efri deild: 76. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1149 í B-deild Alþingistíðinda. (1105)

133. mál, vísitala byggingarkostnaðar

Frsm. (Eggert Þorsteinsson):

Herra forseti. Það mál, sem hér er til umræðu, er allviðamikið og felur í sér miklar breytingar, og mér hefur ekki tekizt, síðan n. fjallaði um málið, að vinna úr þeim gögnum, sem fyrir liggja ímálinu, og vildi þess vegna eindregið mælast til þess við forseta, að umr. um þetta mál yrði á þessu stigi frestað til morguns, sem ég vona að sé nægjanlegur tími fyrir míg að öllu forfallalausu til þess að ljúka því, sem ég tel nauðsynlegt að fram komi í framsöguræðu fyrir málinu, þegar það verður tekið fyrir.