12.11.1956
Sameinað þing: 7. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 2331 í B-deild Alþingistíðinda. (121)

Afgreiðsla mála úr nefndum o. fl.

Bjarni Benediktsson:

Herra forseti. Sjálfstæðisþingmenn báru í síðustu viku fram tvær þáltill. um varnarmálin. Ég vildi beina því til hæstv. forseta, að bann ákvæði efnisumr. um þessar till. svo tímanlega, að þeir samningar, sem standa fyrir dyrum um endurskoðun varnarsamningsins, væru ekki hafnir, áður en till. fá efnismeðferð á Alþingi. Í þessu sambandi óska ég ekki eftir tilteknum degi, heldur eftir því, að hæstv. forseti hafi samráð við hæstv. utanrrh. um það, að till. verði teknar svo snemma fyrir, að samningarnir séu ekki hafnir áður.