09.05.1957
Neðri deild: 94. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1200 í B-deild Alþingistíðinda. (1235)

58. mál, iðnfræðsla

Frsm. (Emil Jónsson):

Herra forseti. Efni þessa litla frv. er eingöngu það að færa orlofstíma iðnnema upp í sömu lengd og aðrir vinnandi menn hafa nú fengið í þessu landi. Iðnn. er sammála um að mæla með frv. Einn nm., hv: 1. þm. Reykv., var þó ekki viðstaddur, þegar málið var afgreitt. Ég hef ekki meira um það að segja, legg aðeins til, að frv. verði samþykkt.