20.05.1957
Sameinað þing: 58. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 2401 í B-deild Alþingistíðinda. (202)

Varamenn taka þingsæti

Frsm. (Áki Jakobsson):

Herra forseti. Kjörbréfanefndin hefur haft til athugunar kjörbréf hins nýja varaþingmanns, Braga Sigurjónssonar, Akureyri, og varð það niðurstaðan, að meiri hl. n., ég, hv. þm. N-Þ. og hv. 1. landsk. þm., leggur til, að kosningin sé tekin gild og kjörbréfið samþykkt. Hv. 11. landsk. þm. sat hjá við afgreiðslu málsins, svo sem hv. sjálfstæðismenn hafa gert áður og hv. 1. þm. Reykv. er búinn að gera grein fyrir.