17.03.1958
Neðri deild: 67. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1526 í B-deild Alþingistíðinda. (1356)

95. mál, sala jarða í opinberri eigu

Gísli Guðmundsson:

Herra forseti. Ég vil aðeins leyfa mér að taka það fram, að ég get vel unað þeirri afgreiðslu, sem hv. nefnd hefur haft á frv. mínu á þskj, 191, enda verði sú afgreiðsla ekki til þess að tefja framgang málsins á neinn hátt.

Vil ég svo þakka n. fyrir stuðning við það málefni, sem hér er um að ræða.