21.04.1958
Neðri deild: 81. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1532 í B-deild Alþingistíðinda. (1369)

95. mál, sala jarða í opinberri eigu

Sigurður Ágústsson:

Herra forseti. Ég vil þakka hv. landbn. fyrir fljóta og góða afgreiðslu á brtt. okkar hv. 10. landsk. um sölu tveggja jarða á Snæfellsnesi, en brtt. okkar var brtt. við brtt. á þskj. 299, sem var nál. hv. landbn. Eftir ósk hv. landbn. var till. okkar hv. 10 landsk. tekin aftur til 3. umr. En nú er ekki þskj. 299 lengur fyrir hendi, og verð ég því að biðja hæstv. forseta að bera þessa brtt. okkar upp sem brtt. við frv. eins og það liggur fyrir eftir 2. umr.