05.11.1957
Efri deild: 17. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 62 í C-deild Alþingistíðinda. (1714)

19. mál, tollskrá o. fl.

Forseti (BSt) :

Þessi ummæli eru alls ekki ástæðulaus, því að sannleikurinn er sá, að hv. þingmenn Sjálfstfl. gátu verið við atkvgr. í gær og verið við jarðarförina einnig, en þótti það óviðkunnanlegt að koma á fund klæddir á þann hátt, sem þeir hefðu þá orðið að gera. Jarðarförin byrjaði kl. 2, en fundur í Ed. byrjaði kl. hálf tvö. Ég tek því ekkert aftur af því, sem ég hef sagt um það.