05.12.1957
Efri deild: 32. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 81 í B-deild Alþingistíðinda. (188)

69. mál, skemmtanaskattur og þjóðleikhús

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Ég hafði ekki búið mig undir það í sambandi við umr. um þetta mál að gefa upplýsingar um hag félagsheimilasjóðs, en ég skal með ánægju gera ráðstafanir til þess, að þær upplýsingar, sem hv. þm, óskaði eftir og ég tel sjálfsagt að láta í té, liggi fyrir hv. menntmn., þegar hún tekur málið til meðferðar.