20.03.1958
Efri deild: 70. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 314 í C-deild Alþingistíðinda. (2168)

127. mál, skipun innflutnings og gjaldeyrismála, fjárfestingarmála o. fl.

Alfreð Gíslason:

Herra forseti. Eins og aðrir hv. ræðumenn, sem hér hafa talað á undan, tel ég hugmyndina, sem á bak við þetta frv. er, góða og athyglisverða. Hins vegar tel ég það mjög óljóst og óákveðið, hvernig lög um þetta efni yrðu framkvæmd, og meðan svo er, tel ég ekki rétt að setja um það lög, jafnvel ekki heimildarlög, og þess vegna segi ég já.

1. gr. samþ. með 10:1 atkv.

2. gr. samþ. með 10 shlj. atkv.

Fyrirsögn samþ. án atkvgr.

Frv. vísað til 3. umr. með 11 shlj. atkv.