03.12.1957
Efri deild: 31. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 22 í B-deild Alþingistíðinda. (31)

3. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Frsm. (Bernharð Stefánsson):

Herra forseti. Með frv. þessu er aðeins farið fram á framlengingu á l., sem gilda nú fyrir yfirstandandi ár og gilt hafa undanfarin ár.

Fjhn. hefur haft málið til meðferðar og hefur borið það saman við núgildandi lög um þetta efni, sem ekki gilda þó nema til ársloka í ár, og er frv. samhljóða þeim l., að öðru leyti, en því, að nú er þessu frv. ætlað að gilda fyrir árið 1958, en seinasta framlenging gilti fyrir yfirstandandi ár. N. er sammála um að mæla með því, að frv. verði samþ. án breytinga, a.m.k. við þessa umr. Þess skal þó geta, að einn af nefndarmönnum, hv. 6. þm. Reykv. (GTh), var fjarstaddur, þegar n. afgreiddi málið.