04.02.1958
Sameinað þing: 24. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1963 í B-deild Alþingistíðinda. (3149)

Þingfrestun og setning þings

forsrh. (Hermann Jónasson):

Hinn 25. jan. 1958 var gefið út svo hljóðandi forsetabréf:

„Forseti Íslands gerir kunnugt:

Ég hef ákveðið samkvæmt till. forsrh., að Alþingi, 77. löggjafarþing, skuli koma saman til framhaldsfunda þriðjudaginn 4. febr. 1958, kl. 13.30.

Gert að Bessastöðum, 25. jan. 1958.

Ásgeir Ásgeirsson.

Hermann Jónasson.“

Þetta var forsetabréf um, að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda. Samkvæmt þessu hefjast nú framhaldsfundir Alþingis. Ég leyfi mér að óska hæstv. forseta og hv. alþingismönnum gleðilegs árs með þakklæti fyrir gamla árið.