17.03.1960
Sameinað þing: 26. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3647 í B-deild Alþingistíðinda. (1830)
Varamenn taka þingsæti, rannsókn kjörbréfa
Frsm. (Alfreð Gíslason læknir):
Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur athugað kjörbréf Ásmundar Sigurðssonar, varaþm. Alþb. í Austurlandskjördæmi, og mælir einróma með, að kosning hans verði tekin gild og kjörbréfið samþykkt.