23.03.1960
Sameinað þing: 28. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3648 í B-deild Alþingistíðinda. (1832)

Varamenn taka þingsæti, rannsókn kjörbréfa

Forseti (SÁ):

Mér hefur borizt bréf frá hæstv. forseta Ed., dags. í gær, svo hljóðandi:

„Mér hefur í dag borizt svo hljóðandi bréf frá Friðjóni Skarphéðinssyni, 5. landsk. þm.: „Þar sem ég er á förum til útlanda til starfa í mannréttindanefnd Evrópu í Strasbourg og verð fjarverandi um tveggja vikna skeið, leyfi ég mér hér með með skírskotun til 138. gr. kosningalaga að fara þess á leit, að varamaður minn, Pétur Pétursson fyrrv. alþm., taki sæti mitt á Alþingi á meðan.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu Alþingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Sigurður Ó. Ólafsson, forseti efri deildar.“

Þá liggur fyrir kjörbréf herra Péturs Péturssonar fyrrv. alþm. útgefið af landskjörstjórn.

Ég vil biðja hv. kjörbréfanefnd að taka kjörbréfið til athugunar og fresta því fundi í nokkrar mínútur, á meðan sú athugun fer fram.