08.04.1960
Efri deild: 61. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3670 í B-deild Alþingistíðinda. (1955)

Þinghlé

Karl Kristjánsson:

Herra forseti. Ég vil fyrir hönd hv. þingdeildarmanna leyfa mér að þakka hæstv. forseta fyrir góðar óskir og fyrir góða stjórn í þessari deild á liðnum mánuðum. Ég vil líka flytja honum árnaðaróskir og óska honum góðrar heimferðar, honum og fjölskyldu hans góðrar afturkomu. Ég bið hv. þingdeildarmenn að taka undir þessi orð mín með því að risa úr sætum. — [Dm. risu úr sætum.]