24.05.1960
Sameinað þing: 53. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 93 í D-deild Alþingistíðinda. (2592)

23. mál, hagnýting farskipaflotans

forseti (FS):

Ég vil geta þess, að mér urðu á nokkur mistök í atkvgr. um fyrsta dagskrármálið. Henni var ekki lokið, og það fór einungis fram atkvgr. um tillgr. en í nafnakallinu skolaðist þetta þannig í huga mér, að atkvgr. að öðru leyti féll niður. Henni er frestað og verður að fara fram á næsta fundi, þannig að máliðverður ekki sent ríkisstj. fyrr en að þeirri atkvgr. lokinni.