06.05.1960
Sameinað þing: 46. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 450 í D-deild Alþingistíðinda. (3169)

904. mál, vörukaupalán í Bandaríkjunum

Fyrirspyrjandi (Eysteinn Jónsson):

Ég þakka hæstv. ráðh. svörin. Skv. þessu skilst mér, að óráðstafað muni vera um 59 millj. af því, sem nú þegar hefur verið notað, og væntanlega 55 millj. af því, sem ónotað er, eða samtals um 119 millj. Og ef búið er að afgreiða Sogið til fulls og Reykjanesveituna með þessum 82 millj., ætti þetta að geta verið til ráðstöfunar í annað. Ég vil biðja hæstv. ráðh. að leiðrétta, ef þetta er ekki rétt skilið. Ég þakka fyrir svörin.