24.03.1961
Efri deild: 83. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1381 í B-deild Alþingistíðinda. (1479)

126. mál, matreiðslumenn

Frsm. (Eggert G. Þorsteinsson):

Herra forseti. Við 2. umr. málsins fór ég þess á leit við flm. þeirrar brtt., sem nú liggur fyrir, um málið, að hann drægi hana til baka til 3. umr., þannig að mér gæfist kostur á að ræða þá till. við hv. nm. iðnn. Formlegur fundur hefur ekki farið fram í n., en hins vegar hef ég talað við hvern einstakan nm. og eru menn á einu máli um að mæla með því, að sú brtt., sem flutt er á þskj. 648, verði samþykkt.