27.03.1961
Sameinað þing: 56. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 537 í D-deild Alþingistíðinda. (2546)

46. mál, verndun geitfjárstofnsins

Gísli Guðmundsson:

Herra forseti. Ég vil fyrir hönd okkar flm. leyfa mér að þakka hv. fjvn., að hún skuli nú hafa afgreitt þetta mál. Ég vil mega vænta þess, að samþykkt till., þó að nokkuð sé breytt orðalagi, beri þann árangur, að ráðstafanir verði gerðar til þess að koma í veg fyrir eyðingu geitfjárstofnsins.