14.03.1962
Sameinað þing: 41. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2740 í B-deild Alþingistíðinda. (2457)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

forseti (BGr):

Borizt hefur svofellt bréf: „Þar sem ég mun ekki geta sinnt þingstörf um næstu vikur vegna embættisanna heima fyrir, leyfi ég mér hér með, með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis, að fara þess á leit, að 1. varamaður Sjálfstfl. í Suðurlandskjördæmi, Jón Kjartansson sýslumaður, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Guðlaugur Gíslason.“

Ég býð Jón Kjartansson velkominn til þings.